Laun grunnskólakennara óásættanleg

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Stjórn Skólastjórafélags Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem skorað er á Samband íslenskra sveitarfélaga að ganga strax til samninga við grunnskólakennara.

„Laun kennara hafa árum saman dregist aftur úr sambærilegum stéttum og eru nú með öllu óásættanleg. Um þetta þarf ekki lengur að deila. Þrátt fyrir það þverskallast sveitarfélögin við að fara í nauðsynlegar leiðréttingar á launakjörum stéttarinnar. Það er ólíðandi,“ segir í ályktuninni og ennfremur:

„Kjaraviðræður hafa staðið yfir í rúm tvö ár og nú neyðast kennarar til að undirbúa aðgerðir til að sækja sjálfsagðar leiðréttingar á launakjörum. Skapa þarf frið um skólastarfið og greiða grunnskólakennurum laun í samræmi við menntun þeirra og ábyrgð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert