Hanna Birna sest aftur á þing

Hanna Birna Kristjánsdóttir í þingsal í dag.
Hanna Birna Kristjánsdóttir í þingsal í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi innanríkisráðherra, tók á ný sæti á Alþingi í dag. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, tilkynnti þetta við upphaf þingfundar.

Hanna Birna tók sér leyfi frá þingstörfum í kjölfar þess að hún sagði af sér sem innanríkisráðherra í nóvember vegna lekamálsins svokallaðs þar sem trúnaðargögnum um hælisleitanda var lekið úr ráðuneytinu til fjölmiðla. Ólöf Nordal tók í kjölfarið við ráðuneytinu.

Hanna Birna tilkynnti þingflokki sjálfstæðismanna í janúar að hún ætlaði að vera áfram í leyfi í nokkrar vikur enn.

Fréttir mbl.is:

„Í hennar höndum að koma aftur til þingsins“

Hanna Birna áfram í fríi frá þingi

Hanna Birna hæst ánægð með eftirmanninn

Hanna Birna hættir sem ráðherra

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert