Hanna Birna áfram í fríi frá þingi

Hanna Birna Kristjánsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur tilkynnt þingflokki sjálfstæðismanna að hún muni taka sér nokkurra vikna hlé frá þingstörfum. „Mér finnst ég þurfa að vinna betur úr þeirri reynslu og því sem ég hef að undanförnu lært um stjórnmál, stjórnkerfið, íslenskt samfélag og sjálfsagt bara lífið sjálft,“ segir hún í bréfi til kollega sinna.

Hanna Birna segir það hafa verið sérstakt að standa utan stjórnmálanna undanfarnar vikur. Þá segist hún hafa farið yfir atburði liðins árs og reynt að draga af þeim pólitísku áföllum og átökum fleiri jákvæða en neikvæða lærdóma.

„Ég vildi óska að ég hefði fyrr en ég gerði áttað mig á því hversu erfitt málið yrði; vildi óska að ég hefði gert minna af því að útskýra atburðarás og grípa til varna í máli sem ég gat ekki útskýrt; og vildi óska að ég hefði aldrei rætt málið eða átt nokkur samskipti við fyrrverandi lögreglustjóra vegna þess, þrátt fyrir skýringar hans um að hann færi ekki með stjórn málsins. Því hef ég þegar komið til umboðsmanns Alþingis með bréfi í dag,“ segir hún m.a.

Bréf Hönnu Birnu:

Kæri félagi.

Gleðilegt ár og kærar þakkir fyrir samstarfið á liðnum árum.

Það hefur verið sérstakt að standa utan stjórnmálanna undanfarnar vikur. Þrátt fyrir að það sé afar stutt síðan ég fór frá og tók mér frí frá pólitíkinni er þetta lengsta tímabilið sem ég hef verið án þeirra viðfangsefna síðan ég fór í fæðingarorlof fyrir tíu árum. Ég sakna sums og síður annars, en hef notað tímann yfir hátíðarnar til að sinna betur því sem mestu skiptir, fjölskyldunni og fólkinu sem næst mér stendur.  

Ég hef að sjálfsögðu farið yfir atburði liðins árs og reynt að draga af þeim pólitísku áföllum og átökum fleiri jákvæða en neikvæða lærdóma. Ég vildi óska að ég hefði fyrr en ég gerði áttað mig á því hversu erfitt málið yrði; vildi óska að ég hefði gert minna af því að útskýra atburðarás og grípa til varna í máli sem ég gat ekki útskýrt; og vildi óska að ég hefði aldrei rætt málið eða átt nokkur samskipti við fyrrverandi lögreglustjóra vegna þess, þrátt fyrir skýringar hans um að hann færi ekki með stjórn málsins. Því hef ég þegar komið til umboðsmanns Alþingis með bréfi í dag.  

Í upphafi nýs árs er ég ákveðin í að læra af erfiðri reynslu síðasta árs; forgangsraða persónulega með öðrum hætti en ég hef gert og fylgja hjartanu meira en hefðunum – hvort sem er í stjórnmálunum eða annars staðar. Eins og ég hef áður sagt hefur þetta mál tekið mjög á mig og mína. Mér finnst ég þurfa að vinna betur úr þeirri reynslu og því sem ég hef að undanförnu lært um stjórnmál, stjórnkerfið, íslenskt samfélag og sjálfsagt bara lífið sjálft. Ég mun því, líkt og áður hefur komið fram, taka mér nokkurra vikna hlé frá þingstörfum. Ég ætla að nýta þann tíma vel og hlakka til ánægjulegs samstarfs við ykkur öll á nýju ári.

Með góðri kveðju

Hanna Birna Kristjánsdóttir

varaformaður Sjálfstæðisflokksins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert