Ekkert unnið með því að taka fram úr bílalestum

Lestarstjórar eru margir á fjórum hjólum. Þá er bara að …
Lestarstjórar eru margir á fjórum hjólum. Þá er bara að sýna þolinmæði og muna að maður fór sjálfvliljugur í frí úti á landi fyrstu ferðahelgi sumarsins. mbl.is/Styrmir Kári

Lögreglan á Norðurlandi vestra vekur athygli á síauknum umferðarþunga þessa stundina og minnir ökumenn á að sýna þolinmæði í umferðinni.

„Það er ekkert unnið með því að taka fram úr bílalestum og draga uppi næstu lest á undan. Sýnum þolinmæði og tillitsemi í umferðinni og þá skilum við okkur frekar öll heil heim!“ segir lögreglan á Facebook-síðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert