Getur EM verið hættulegt heilsunni?

Íslenska liðið æfði fyrir leikinn stóra í gær.
Íslenska liðið æfði fyrir leikinn stóra í gær. AFP

Mikil spenna er í loftinu fyrir leik Íslendinga og Englendinga á EM í knattspyrnu sem fer fram í Nice í kvöld. Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, veltir því fyrir sér í pistli á vef spítalans hvort landsleikir geti verið hættulegir heilsunni, enda þekkt að hjartaáföllum geti fjölgað í kringum atburði þar sem mikil geðshræring grípur um sig.

Pistillinn ber yfirskriftina: „Geta landsleikir í fótbolta verið hættulegir heilsunni?“

Davíð segir að gott gengi íslenska landsliðsins hafi ekki farið fram hjá neinum. „Ekki nóg með það heldur hafa leikirnir verið þvílíkt jafnir og spennandi að sumum þykir nóg um. Ýmsir hafa jafnvel velt fyrir sér hvort svona spenna sí ofan í æ geti verið óholl fyrir hjartað, ekki síst fyrir þá sem kunna að vera veikir fyrir.“

Davíð segir enn fremur, að það sé þekkt að hjartaáföllum getur fjölgað í kringum atburði þar sem mikil geðshræring grípur um sig, til dæmis við náttúruhamfarir og jafnvel alvarlegar umferðarteppur.

„Fótbolti getur auðvitað leitt til þess að spennustig einstaklinga hækkar verulega og það hefur verið sýnt fram á aukningu á bráðum hjartatilfellum í kringum mikilvæga leiki. Það var gerð rannsókn í Þýskalandi þegar heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu var haldin þar fyrir áratug og kom í ljós að á leikdögum Þjóðverja fjölgaði komum til muna á bráðamóttökur vegna brjóstverkja og hjartsláttartruflana. Hér heima var gerð rannsókn í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Hún sýndi fram á aukningu á komum á bráðamóttökur hjá einstaklingum með einkenni frá hjarta í nokkra daga eftir frægt ávarp þáverandi forsætisráðherra. Íslendingar virðast því síður en svo vera ónæmir fyrir áhrifum stórra viðburða á heilsuna.

Við urðum ekki vör við fjölgun á heimsóknum á Hjartagátt Landspítala í tengslum við leik Íslands og Austurríkis síðastliðinn miðvikudag þrátt fyrir mjög svo æsilegan endi á þeim leik. Samkvæmt ofansögðu er þó vissulega ákveðin hætta fyrir hendi. Það stefnir í spennandi leik gegn Englendingum á mánudaginn kemur og sumir spá að hann geti jafnvel endað í vítaspyrnukeppni. Ef svo fer mun heldur betur reyna á taugar landsmanna enda kannski fátt meira taugatrekkjandi en vítaspyrnukeppni þar sem mikið er í húfi.

Er hægt að undirbúa sig fyrir svona átök?

Það er auðvitað ekki hægt að ráðleggja fólki sem er veikt fyrir að horfa ekki á leikinn. Það myndu sennilega ekki margir hlusta á slíkar ráðleggingar hvort eða er. Þetta hefur jú verið þvílík skemmtun hingað til og svona árangur eflir auðvitað þjóðarstoltið svo um munar. Það eru þó nokkur almenn ráð sem rétt er að hafa í huga og gætu dregið úr hættu á bráðum uppákomum varðandi hjartað. Þetta á ekki síst við um þá sem eru með þekktan hjartasjúkdóm.

  • Forðast að borða þunga máltíð rétt fyrir eða samhliða leiknum, ekki síst fituríkan skyndimat.
  • Ekki vera illa sofin.
  • Forðast mikla áfengisneyslu fyrir eða samhliða leiknum.
  • Forðast miklar reykingar þar sem tóbak eykur á samdrátt í kransæðum og getur þannig aukið líkur á hjartaáfalli undir þessum kringumstæðum.
  • Þeir sem eru á hjartalyfjum ættu að muna sérstaklega vel eftir að taka þau á leikdag. Þetta á ekki síst við ef þeir taka svokallaða beta blokka og hjartamagnýl.
  • Ef heitt er í veðri og horft er á leikinn úti, t.d. á Ingólfstorgi, getur vatnsdrykkja samhliða verið gagnleg.
  • Ef spennustigið hjá einstaklingum verður of hátt, þá er gott að draga andann djúpt nokkrum sinnum og jafnvel taka sér stutt hlé frá leiknum.

Ef einkenni frá hjarta gera vart við sig, einkum brjóstverkur sem varir í meira en nokkrar mínútur eða skyndilegur hraður, jafnvel óreglulegur, hjartsláttur er ágætt að muna eftir númeri Neyðarlínunnar – 112,“ skrifar Davíð, sem endar á hinum sígildu hvatningarorðum; „Áfram Ísland!“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert