Bílvelta við Hólmsá

Bíllinn var nálægt því að fara ofan í Hólmsá.
Bíllinn var nálægt því að fara ofan í Hólmsá. mbl.is/Einar Falur Ingólfsson

Bíll valt á Suðurlandsvegi við Hólmsá um hálfáttaleytið í kvöld. Ökumaðurinn var einn í bílnum og var hann fluttur á slysadeild.

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að bílinn hefði farið ofan í Hólmsá en þegar að var komið lá bíllinn við bakkann. Betur fór því en á horfðist.

Ekki er ljóst á þessari stundu hversu mikið ökumaðurinn meiddist.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert