Markmiðið að tryggja öryggi vegfarenda

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á Suðurnesjum verður með hert eftirlit í umferðinni um helgina eins og hefð er fyrir á aðventunni. Í nýafstöðnu aðventueftirliti voru rúmlega 200 ökumenn stöðvaðir og kannað með ástand þeirra og réttindi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Þar segir enn fremur að fjórir hafi verið teknir vegna gruns um fíkniefnaakstur og einn vegna gruns um ölvunarakstur. Þá mældist einn ökumaður undir mörkum og var honum gert að hætta akstri.

„Markmið þessa aukna eftirlits er að auka öryggi vegfarenda í skammdeginu á aðventu þegar umferðarþungi er að jafnaði meiri meiri heldur en á öðrum tímum árs,“ segir lögreglan í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert