Viðurkenningar Stígamóta afhentar

Viðurkenningahafarnir í dag.
Viðurkenningahafarnir í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viðurkenningar Stígamóta voru veittar í dag en þetta er í níunda skipti sem þær eru veittar. Hand­haf­ar þeirra þykja all­ir hafa lagt sitt af mörk­um í bar­átt­unni fyr­ir rétt­læti og bar­átt­unni gegn kyn­ferðisof­beldi.

Kemur fram í tilkynningu frá Stígamótum að valið í ár hafi verið auðvelt. „Árið 2016 var ár Stígamótafólksins sem stóð fram og sagði sögur sínar og leyfði birtingu mynda af sér með tölurnar sínar sem tákna tímann leið frá því ofbeldi var framið á þeim og þar til þau sögðu frá ofbeldinu,“ kemur fram í tilkynningunni. 

„Það voru þau sem voru talskonur og talsmenn Stígamóta í fræðslu og fjáröflunarátaki ársins „Styttum svartnættið“. Við erum ákaflega stolt af þeim og því starfi sem farið hefur fram á staðnum okkar allra og viðurkenningar ársins eru þeirra,“ segir ennfremur.

Viðurkenningarhafarnir eru eftirfarandi:

Arndís Birgisdóttir, Ásgerður Jóhannsdóttir, Bjarney Rún Haraldsdóttir, Bryndís Ásmundsdóttir, Brynhildur Yrsa Valkyrja, Elín Hulda Harðardóttir, Ellen Svava, Esther Einarsdóttir, Eva Dís Þórðardóttir, Friðjón Víðisson, Friederike Berger, Gerða Sigurðardóttir, Guðrún Harðardóttir, Guðrún Helga Eyþórsdóttir, Helga María Finnbjörnsdóttir, Helga Sveinsdóttir, Hulda Haraldsdóttir, Inger Schiöth, Ísleifur Pádraig Fridriksson, Karl Ómar Guðbjörnsson, Kristín Hákonardóttir, Kolbrún Erna Pétursdóttir, Lilja Hrönn Einarsdóttir, Margrét Heiður, Nína Helgadóttir, Ólafur Helgi Móberg, Ragna Jóhannesdóttir, Ragnheiður Helga Bergmann, Sara Dröfn Valgeirsdóttir, Sif Böðvarsdóttir, Sigríður Björk Sigurðardóttir, Sigrún Bragadóttir, Silja Ívarsdóttir, Sólveig Höskuldsdóttir, Sonja Kovacevic, Steinunn Jónsdóttir, Særún Ómarsdóttir, Tanja Andersen Valdimarsdóttir, Thelma Dögg Guðmundsen og Viktoría Dögg.
 

Fólkið sem kom fram og sagði sögur sínar á árinu …
Fólkið sem kom fram og sagði sögur sínar á árinu hlaut viðurkenningu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert