Sex bíla árekstur á Breiðholtsbraut

mbl.is

Sex bíla árekstur varð á Breiðholtsbrautinni um fimmleytið í dag, nærri Selásbraut.

Þrír voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru áverkar tveggja hinna slösuðu minni háttar, en eitthvað meiri áverkar voru á þeim þriðja.

Veginum var lokað í 40 mínútur eftir áreksturinn og urðu töluverðar umferðartafir á svæðinu á meðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert