Ausandi rigning í Bláfjöllum

Það er synd að segja að það sé mikill snjór …
Það er synd að segja að það sé mikill snjór í Hlíðarfjalli. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Ausandi rigning er í Bláfjöllum og ljóst að skíðasvæðið þar verður ekki opnað á næstunni. Hægt er að skíða í Tindastól og Hlíðarfjalli.

„Skíðasvæði Tindastóls verður opið í dag frá kl. 11 til kl 16, veður núna kl. 8:34: Hægviðri, -1°C og snjókoma,“ segir í fréttatilkynningu. 

Í Hlíðarfjalli verður opið kl. 10 – 16. „Núna kl. 9 er logn, -1°C og snjókoma. Færið er troðinn þurr snjór, með besta móti. Allar helstu lyftur og brekkur eru opnar,“ segir í tilkynningu.

Aftur á móti segir á vef Bláfjalla: „Ekki verður opnað í Bláfjöllum aftur fyrr en snjóar og frystir. Mikið hefur tekið upp á svæðinu og máttum við alls ekki við því. Við munum um leið og einhver von er á opnun uppfæra  síðuna. Vonandi verður það fljótlega.“

Í umfjöllun Skapta Hallgrímssonar í Sunnudagsmogganum kemur fram að aðeins á Sauðárkróki er ástandið gott. Nægur snjór hefur verið í Tindastóli í vetur og opið flesta daga síðan í desember. Hópar hafa komið úr Reykjavík allar helgar frá áramótum til æfinga.

Á föstudaginn voru flestar skíðaleiðir opnar í Hlíðarfjalli við Akureyri. Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður sagði þokkalega mikinn snjó á öllum skíðaleiðum.

Veturinn hefur hvorki verið fugl né fiskur. „Hinn 15. febrúar í fyrra hafði verið opið í 60 daga, á sama tíma 2015 í 41 dag; þá var góður snjór en þetta var lægðaveturinn mikli og mjög oft skítaveður. 15. febrúar núna hafði verið opið í 34 daga í Hlíðarfjalli.“

Guðmundur fagnar öllum snjó: „Í vikunni komu 15 millimetrar! Það skipti máli. Við þurfum ekki stórhríð til að fylla upp í allt. En ef hér væri ekki snjóframleiðsla hefðum við líklega ekkert opnað í vetur.“

Einar Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöllum, hefur verið í bransanum síðan 1981. „Ég man ekki að ástandið hafi verið svona slæmt nánast um allt land á sama tíma. Við megum þakka frábærum troðaramönnum að staðan sé þó ekki verri en hún er hér í Bláfjöllum. Þeir hafa unnið daga og nætur við að sækja snjó í allar hvilftir til að setja í brekkurnar.“

Einar segir að ekki þurfi að snjóa mikið til að færið verði gott. „Þótt veðrið hafi ekki verið mjög slæmt niðri í byggð hefur verið rok og rigning hér uppi í fjöllunum síðustu daga, eiginlega rignt eldi og brennisteini.“

Ekkert hefur verið opið í Skálafelli í vetur vegna snjóleysis.

Á Dalvík kom gott „snjóskot“ í október og til stóð að opna skíðasvæðið en í mikilli tveggja daga hláku tók upp 70 cm af troðum snjó. Ótrúlegt, en satt.

„Hægt er að renna sér og við höfum haldið úti æfingum fyrir krakkana. Það verður þó sífellt erfiðara enda hefur verið hláka í þrjár vikur,“ sagði Snæþór Arnþórsson, formaður Skíðafélags Dalvíkur, fyrir helgi. Hann kveðst þó tiltölulega bjartsýnn. „Vonandi kemur vetur einhvern tíma í vetur!“ sagði Snæþór.

Ágætt færi hefur verið í Skarðsdal á Siglufirði síðan um áramót. „Hér var opið meira og minna allan janúar og færið ljómandi en nú erum við aftur á byrjunarreit,“ segir Egill Rögnvaldsson forstöðumaður. „Um síðustu helgi var hávaðarok og mjög hlýtt. Staðan er því ekki góð en við erum að bíða eftir nýrri sendingu! Vonandi kemur hún fljótlega.“

Venjulega er svæðið opnað 1. desember en tæpum mánuði seinna að þessu sinni. „Mig vantar 3.000 gesti miðað við sama tíma í fyrra. Mars og apríl verða vonandi góðir.“

Marvin Ómarsson, framkvæmdastjóri Skíðamiðstöðvar Austurlands í Oddsskarði, segir töluvert þurfa að snjóa til að hægt verði að opna svæðið. „Hér hefur ekki verið frost í tvær vikur, ekki einu sinni næturfrost, og ég held að hitinn hafi verið í 18 stig í vikunni. Ég er hættur að fylgjast með hitamælunum!“

Opið hefur verið 12 daga í vetur. „Oft hafa komið snjólausir kaflar, aðallega vegna ríkjandi norðanátta og úrkomuleysis, en það er heldur betur óvenjulegt að vera með yfirfulla læki og 14 stiga hita í febrúar. Annars er mesta úrkoman hér alltaf í mars svo við reynum að vera bjartsýn. Snjórinn kemur – eða það hlýtur að vera. Ég hugsaði reyndar alveg eins fyrir þremur vikum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert