Afklæddist og hótaði

Konan sló dyravörðinn með krepptum hnefa í andlitið.
Konan sló dyravörðinn með krepptum hnefa í andlitið. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Tilkynnt var um par sem var til vandræða á veitingastað í Bankastræti um klukkan 23 í gærkvöldi. Konunni hafði verið vísað út af veitingastaðnum þegar hún fór að afklæðast þar inni og hafði parið einnig ráðist á dyravörð staðarins.

Að sögn lögreglu sló konan dyravörðinn þegar starfsmenn staðarins voru að fylgja henni út og mun maðurinn hafa sparkað í dyravörðinn.   

Þegar lögregla kom á staðinn sló konan lögreglumann með krepptum hnefa í andlitið. Eins fóru þau ekki að fyrirmælum lögreglu á vettvangi höfðu í hótunum við lögreglumenn. Hótuðu þau meðal annars að skaða lögreglumennina síðar og fjölskyldur þeirra. Parið er vistað í fangageymslu lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert