Verið er að moka Hellisheiði

Hellisheiði hefur verið lokuð í dag en unnið er að …
Hellisheiði hefur verið lokuð í dag en unnið er að því að opna hana. mbl.is/Ómar

Verið er að moka Hellisheiði og reikna má með að hún opni í kvöld en hún er enn lokuð vegna veðurs. Holtavörðuheiði er lokuð en fljótlega verður skoðað hvort hægt sé að ryðja hana, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 

Vegurinn frá Kirkjubæjarklaustri að Jökulsárlóni er lokaður og enn er bálhvasst á svæðinu. 

Vegurinn um Fjarðarheiði og Oddskarð er lokaður og ekki er reiknað með að hann verði opnaður í dag. Einnig er vegurinn um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði lokaður. 

Sjá nánar á vef Vegagerðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert