Ungir Píratar ósáttir við aðbúnað flóttafólks

Frá Víðinesi í haust.
Frá Víðinesi í haust. mbl.is/Árni Sæberg

Ungir Píratar krefjast þess að íslensk stjórnvöld og Útlendingastofnun bæti aðstöðu flóttafólks og hælisleitenda hér á landi. Þetta kemur fram í ályktun frá félagsfundi Ungra Pírata í gærkvöldi.

„Fjölmiðlar hafa ítrekað sýnt fram á slæman aðbúnað hælisleitenda og flóttafólks og nú nýlega gerði Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur athugasemdir við aðstæður á Víðinesi þar sem hælisleitendur eru hýstir. Ekki bara eru húsakynnin skemmd og skítug og maturinn kaldur heldur eru hælisleitendur einnig einangraðir á þessum stað og fólk sem hefur óskað eftir því að heimsækja fólkið fær ekki leyfi yfirvalda til þess.

Á Víðinesi er öryggisgæsla sem bannar allar heimsóknir jafnvel þó að heimafólk vilji fá heimsókn. Einnig er ferðafrelsi þeirra mjög takmarkað þar sem að einungis er boðið upp á eina ferð til og frá Víðinesi á dag. Þessi skortur á frelsi eykur einnig á einangrunina.

Hvaðan koma þessar úr sér gengnu og ómannúðlegu reglur?

Það er ekki boðlegt að láta fólk sem er að flýja stríð og óöryggi í heimalandi sínu búa hér á Íslandi við heilsuspillandi aðstæður bæði andlega og líkamlega. Lagið þetta, núna!

Ungir Píratar,“ segir í ályktun félagsfundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert