Vinna Samgöngustofu við endurskoðun á samþykktum handbókum fyrir fisfélögin, sem farið var í eftir að rannsóknarnefnd samgönguslysa beindi því að stofnuninni að gera auknar kröfur um þekkingu og vinnubrögð þeirra sem vinna að samsetningu og viðhaldi fisa, er á lokastigi.
Frétt mbl.is: Missti afl vegna rangs frágangs
Þetta kemur fram í skriflegu svari Samgöngustofu við fyrirspurn mbl.is, en eins og greint var frá fyrr í dag má rekja orsök slyss í Úlfarársdal í júní í fyrra til rangs frágangs á vélinni. Fisflugvélinni var nauðlent á túni við bóndabæ og endaði á hvolfi eftir að hún missti afl.
Í svarinu segir að sérfræðingar stofnunarinnar hafi fundað með Fisfélagi Reykjavíkur og gert væri ráð fyrir að viðeigandi breytingum á handbókum yrði lokið innan skamms og verklagi breytt til samræmis við það.
Rannsóknarnefndin hafði áður gefið út skýrslu í tengslum við ófullnægjandi frágang við eldsneytiskerfi fiss, en var það vegna banaslyss er varð þann 20. október 2012 í grennd við fisflugvöllinn Sléttuna á Reykjanesi. Í kjölfarið á því flugslysi gaf nefndin út skýrslu þar sem ein tillagan í öryggisátt, sem snéri að Samgöngustofu, hljóðaði svo: „Auknar kröfur verði gerðar um þekkingu og vinnubrögð þeirra sem vinna að samsetningu sem og viðhaldi fisa.“
Viðbrögð Samgöngustofu við tillögunni voru að hefja, í samvinnu við Fisfélag Reykjavíkur, vinnu við endurskoðun á samþykktum handbókum fyrir fisfélögin. Að auki gat Samgöngustofa þess að ferli stofnunarinnar við samþykktir á handbókum væri til endurskoðunar og vonaðist til þess að sú vinna kláraðist fyrir vorið 2016. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar í dag kom í ljós að þessari vinnu væri ekki lokið og ítrekaði nefndin því tillögu sína.