Aðalmeðferð í máli Thomasar Møller Olsen, sem ákærður er fyrir að hafa myrt Birnu Brjánsdóttur, hefst í Héraðsdómi Reykjaness klukkan 9.15. Gert er ráð fyrir að alls muni 37 manns bera vitni fyrir dómi og munu flestir þeirra koma fyrir dóm í dag og á morgun.
Búist er þá við að aðalmeðferðin hefjist í dag á skýrslugjöf Thomasar, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá 19. janúar.
Í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær kom fram að aðalmeðferðin muni fara fram á fimm tungumálum - íslensku, ensku, dönsku, þýsku og grænlensku. Því er þörf fjögurra túlka sem þýtt geta vitnisburði úr hinum tungumálunum fjórum skilmerkilega yfir á íslensku.
Thomas, sem er grænlenskur ríkisborgari fæddur árið 1987, er ákærður fyrir að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana í janúar síðastliðnum.
Birna fannst látin við Selvogsvita hinn 22. janúar eftir að hafa verið saknað í átta sólarhringa. Thomas hefur frá upphafi haldið fram sakleysi sínu, en ákæruvaldið telur frásögn hans vera í hróplegu ósamræmi við sönnunargögn málsins.