Alvarlegt umferðarslys á Miklubraut

mbl.is/Eggert

Alvarlegt umferðarslys varð á Miklubraut nú fyrir skömmu. Sjúkrabílar, lögreglubílar og slökkviliðsbíll hafa verið sendir á staðinn og hefur lögregla lokað Miklubraut í báðar akstursáttir.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins varð slysið við brúna þar sem Réttarholtsvegur liggur yfir Miklubraut. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um slysið að svo stöddu.

Lögreglan getur engar frekari upplýsingar veitt um málið á þessari stundu, hvorki hversu margir bílar lentu í slysinu eða um alvarleika þess. 

Uppfært kl 9:40:

Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að svo virðist vera sem ökumaður bílsins hafi lent á vegriði og kastast út úr bílnum og bíllinn skautað áfram. Segir hann að gera megi ráð fyrir lokun næsta klukkutímann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert