Gríðarlegur fjöldi bíður svara

Talsverð örtröð er við söluskrifstofu Icelandair á Keflavíkurflugvelli þar sem …
Talsverð örtröð er við söluskrifstofu Icelandair á Keflavíkurflugvelli þar sem gríðarlegur fjöldi fólks bíður afgreiðslu. Ljósmynd/Víkurfréttir

Gríðarlegur fjöldi fólks bíður nú eftir afgreiðslu á söluskrifstofu Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Isavia hefur kallað út aukamannskap til þess að reyna að sinna fólkinu sem bíður þess að fá svör frá Icelandair. „Það er búið að setja hérna upp borða til þess að girða af og löng röð,“ segir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við mbl.is.

Guðjón segir fólkið aðallega bíða upplýsinga um hvernig það geti komist leiðar sinnar með öðrum hætti eða varðandi hótelgistingu hér vegna þess að það komist ekki af stað strax.

Hann segir Isavia hafa verið við því búið að kalla út aukamannskap ef til þess kæmi. „Við höfum verið að gefa fólkinu vatn, samlokur og súkkulaði og reyna að veita upplýsingar. En að sjálfsögðu er það svo Icelandair sem veitir allar helstu upplýsingar og það er Icelandair sem fólk þarf að ná tali af.“

Að sögn Guðjóns fór að fjölga í röðinni við söluskrifstofu Icelandair eftir því sem leið á morguninn. „Eftir því sem ég fæ upplýsingar hér þá er mikil yfirvegun meðal farþega, það er mjög gott á meðan það er.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert