Hafa áhyggjur af gæðum og öryggi offituaðgerða

Landlæknir hefur áhyggjur af sjúklingum sem fara í offituaðgerðir án …
Landlæknir hefur áhyggjur af sjúklingum sem fara í offituaðgerðir án nægilegs undirbúnings og eftirlits. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Landlæknir telur ástæðu til að hafa áhyggjur af gæðum og öryggi skurðaðgerða við offitu og eftirmeðferðar slíkra aðgerða. Enn fremur telur landlæknir ástæðu til að hafa áhyggjur af sjúklingum sem velja að fara í slíkar aðgerðir án nægilegs undirbúnings og eftirlits.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef landlæknisembættisins. Embættið hefur nú til rannsóknar erindi er varðar afleiðingar slíkra skurðaðgerða, en tvær konur hafa látist í kjölfar magaermaraðgerða hér á landi á þessu ári. Báðar aðgerðirnar voru gerðar á einkastofu. Málin eru einnig til rannsóknar hjá lögreglu.

„Landlæknir vill minna á að skurðaðgerðir fela ávallt í sér áhættur, hverju nafni sem þær nefnast. Allar tegundir aðgerða vegna offitu fela í sér hættur til skemmri og lengri tíma. Ákvörðun um aðgerð þarf að byggja á traustum upplýsingum um eðli, verkun og afleiðingar aðgerðar, valkosti, væntingar, vandamál og vágesti,“ segir á vef landlæknis.

Þar segir jafnframt að skurðaðgerð ein og sér eigi aldrei að vera útgangspunktur meðferðar við offitu enda krefjist þær mikilla og varanlegra breytinga á lífsháttum ef varanlegur árangur eigi að nást. Nauðsynlegt að til staðar sé nægilegt eftirlit og stuðningur við áframhaldandi breytingar á lífsháttum ásamt meðferð fylgikvilla og ýmissa vandamála sem geta komið upp.

Frétt mbl.is: Alls ekki hættulausar aðgerðir

„Ef farið er á eigin vegum í slíkar aðgerðir þarf að huga að því hvernig eftirfylgd og meðferð fylgikvilla og aukaverkana er háttað. Ef farið er til útlanda á eigin vegum þarf að huga vel að tryggingamálum þar sem hefðbundnar ferðatryggingar tryggja sjaldnast kostnað af skakkaföllum sem verða við læknismeðferðir sem ekki teljast bráðatilvik. Slíkur kostnaður getur orðið gríðarlegur ef illa fer.“

Þá er bent á að meðferð við offitu sem stenst alþjóðlegar kröfur, þar með talin formeðferð, skurðaðgerð og eftirfylgni er í boði innan íslenska heilbrigðiskerfisins. Forkröfurnar séu hóflegar og þeim ætlað að tryggja að farið í sé aðgerð eftir góðan undirbúning og með réttar væntingar og vitneskju.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert