Íslendingar í kokkakeppni

Hafsteinn Ólafsson keppir í Nordic Chef, í Nordic Chef Junior …
Hafsteinn Ólafsson keppir í Nordic Chef, í Nordic Chef Junior keppir Hinrik Lárusson frá Grillinu.

Íslendingar eiga tvo keppendur í matreiðslu í norðurlandakeppninni Nordic Chef Of The Year og keppanda í framreiðslukeppninni Nordic Waiter Of The Year.

Keppnin í matreiðslu er með „mystery basket“-sniði þar sem keppendur fá að sjá skylduhráefnin degi fyrir keppni og skila síðan af sér 3 rétta matseðli fyrir 12 gesti á keppnisdegi. Framreiðslumaðurinn vinnur með matreiðslumönnum við þjónustu á keppnismatnum og þarf einnig í keppninni að sýna fagleg vinnubrögð í sínum aðgerðum, para vín við réttina og útbúa kokteila. Keppnin hófst kl 8:00 í morgun á dönskum tíma, segir í fréttatilkynningu.

Hafsteinn Ólafsson sem er Kokkur ársins 2017 og starfar á Sumac Grill + Drinks keppir í Nordic Chef, í Nordic Chef Junior keppir Hinrik Lárusson frá Grillinu. Í framreiðslu er það Lúðvík Kristinsson frá Grillinu sem keppir fyrir Íslands hönd.

Lúðvík Kristinsson keppir í framreiðslu.
Lúðvík Kristinsson keppir í framreiðslu.

Þjálfari Hafsteins og dómari í matreiðsluhluta keppninnar er Þráinn Freyr Vigfússon, þjálfari Hinriks er Sigurður Laufdal.

Thelma Björk Hlynsdóttir þjálfar Lúðvík og dæmir jafnframt í framreiðslukeppninni. Úrslit verða tilkynnt í kvöld.

Klúbbur matreiðslumeistara sendir þessa þrjá keppendur til leiks og rekur klúbburinn afreksstarf í matreiðslu og keppnisstarf ungra matreiðslumanna í Kokkalandsliðinu og keppnina Kokkur ársins ásamt þátttöku í alþjólegum keppnum eins og hér um ræðir. Skipulag keppninnar er í höndum Norðurlandasamtaka matreiðslumeistara og fer keppnin fram í Herning samhliða matvælasýningunni Foodexpo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert