Miklar skemmdir urðu á pökkunarhúsi sem eldur kom upp í að Reykjaflöt á Flúðum í gærkvöldi. Þetta segir Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn í pökkunarstöðinni, en hún var í ljósum logum er slökkvilið kom á vettvang.
Um 30 slökkviliðsmenn tóku þátt í að ráða niðurlögum eldsins, en pökkunarstöðin er um 200 m2 og tilheyrir gróðrastöð á Flúðum.
„Það var búið að slá verulega á eldinn um 20 mínútum eftir að við komum á staðinn, síðan snerist þetta meira um að slökkva í glæðunum,“ segir Pétur, en tilkynnt var um eldinn rétt fyrir níu í gærkvöldi.
Sums staðar reyndist slökkviliði erfitt að komast að logunum vegna járnplatna og annars slíks sem í húsinu var. Þá þurfti einnig að rjúfa klæðningar og annað til að komast í glóð. „Það var ýmislegt þarna inni sem er eldfimt eins og yfirleitt er,“ bætir Pétur við og segir húsið vera mikið skemmt eftir brunann.
Vinnu á vettvangi var lokið um eittleytið í nótt.
Engar skemmdir urðu á öðrum húsum, enda var vindátt hagstæð og nokkur fjarlægð í næstu hús. „Það barst reykur um gróðurhúsin, en það var ekki ræktun í gangi þar og því virðast ekki hafa orðið skemmdir á ræktun,“ segir Pétur.
Eldsupptök eru ókunn en lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.