Ölvaðir ökumenn óku á

mbl.is/Arnþór Birkisson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók tvo ölvaða ökumenn sem höfðu ekið á aðrar bifreiðar í nótt. Í öðru tilvikinu hafði ökumaðurinn ekið á mannlausa bifreið og stungið af en í hinu hafði ökumaðurinn ekið á aðra bifreið.

Annars var mjög rólegt hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og á landinu öllu í nótt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu víða um land í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert