Nemendur Háteigsskóla umkringdu skólann í dag og sungu afmælissönginn, en skólinn fagnar hálfrar aldar afmæli á laugardaginn. Með þeim gjörningi voru nemendur, sem eru um 450 talsins, og starfsfólk að ramma inn höfuðáherslur skólans; virðing, samvinna og vellíðan.
Arndís Steinþórsdóttir, skólastýra Háteigsskóla, segir að nemendurnir hafi verið ánægðir með afrakstur og útkomu gjörningsins.
Háteigsskóli hefur gegnt ýmsum hlutverkum í gegnum tíðina. „Í raun má segja að til séu tveir hópar af fyrrverandi nemendum: Fólk sem var í Tilrauna- og æfingadeild Kennaraháskólans og fólk sem gekk í grunnskólann Háteigsskóla,“ segir Arndís.
Háteigskóli varð formlega grunnskóli árið 1998, en frá stofnun hans, 15. nóvember árið 1968, hafði hann gengið undir heitinu Tilrauna- og æfingaskóli Kennaraháskólans. Þá átti hann að gegna hlutverki æfingadeildar við Kennaraháskólann. Í æfingaskólanum voru ýmsar tilraunir til kennslu og þjálfunar kennaranema gerðar, sem markaði sérstöðu skólans.
Sem fyrr segir, heldur skólinn upp á 50 ára afmæli sitt laugardaginn 17. nóvember kl. 13 til 15. Þetta er gert undir yfirskriftinni: Svona erum við.
Skólinn verður til sýnis og hægt verður að ganga um og skoða öll rými. Klukkan 13 verður stutt dagskrá í sal þar sem kór skólans syngur nokkur lög undir stjórn Sigurðar Bragasonar tónmenntarkennara.
Allir velunnarar skólans, foreldrar, fyrrverandi starfsfólk og eldri sem yngri nemendur, eru hjartanlega velkomnir á afmælishátíðina að sögn Arndísar.