Landhelgisgæslan hefur óskað liðsinnis danska flughersins vegna leitar sem nú stendur yfir í Sölvadal að unglingspilti sem féll í Núpá á tíunda tímanum í gærkvöldi.
Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni tóku Danir vel í hjálparbeiðni Landhelgisgæslunnar og var danskri C130 Hercules-flugvél flughersins, sem var skammt undan ströndum Íslands, snúið við og lenti vélin á Reykjavíkurflugvelli kl. 11:48.
Vélin flytur kafara, björgunarsveitarmenn og búnað norður á Akureyri til að aðstoða við leitina.
Laust fyrir kl 22:00 í gærkvöldi barst lögreglunni á Norðurlandi eystra tilkynning um að maður hefði fallið í ána en hann hafði verið við annan mann að vinna við stíflu sem er í ánni þegar krapaskafl hreif hann með sér. Björgunaraðilar hafa þegar notið liðsinnis tveggja þyrla Landhelgisgæslunnar.