Allt að 16 stiga frost í dag

Bílstjóri skefur af framrúðunni í frostinu.
Bílstjóri skefur af framrúðunni í frostinu. mbl.is/Hari

Spáð er norðlægri átt í dag, 5-13 metrum á sekúndu. Él verða á Norður- og Austurlandi en bjart með köflum annars staðar. Hvessir suðaustantil um tíma síðdegis.

Frost verður á bilinu 3-16 stig, kaldast inn til landsins en dregur úr frosti á morgun.

Á morgun er spáð norðlægri átt, 8-13 metrum á sekúndu og bætir í ofankomu en áfram þurrt á Suður- og Vesturlandi.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert