Ekkert afl á ofnum PCC á Bakka

Kísilverksmiðja PCC á Bakka.
Kísilverksmiðja PCC á Bakka. mbl.is/​Hari

Vegna bilunar í spennivirki Landsnets er ekkert afl á ofnum kísilverksmiðju PCC á Bakka þessa stundina.

Neyðarskorsteinar eru opnir, ofnarnir eru að kólna og því getur fólk orðið vart við lykt, að því er kemur fram á facebooksíðu verksmiðjunnar.

„Þessi bilun er afleiðing óveðursins sem gekk yfir landið fyrr í vikunni. Það er lögð mikil áhersla á viðgerðir og vonumst við til að þeim ljúki sem allra fyrst. Við munum upplýsa um framvindu mála á næstu dögum,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert