„Grundvallarfrelsissvipting sem ég stend alfarið gegn“

Eydís Blöndal, varaþingmaður Vinstri grænna, gerði dýravelferð að umtalsefni í …
Eydís Blöndal, varaþingmaður Vinstri grænna, gerði dýravelferð að umtalsefni í jómfrúarræðu sinni á Alþingi í dag. Skjáskot/Alþingi

Tilkall sem fólk upplifir sig búa yfir til lífs dýra er birtingarmynd heimsmyndar neyslusamfélags sem Eydís Blöndal, varaþingmaður Vinstri grænna, telur vera rót loftslagsvár. 

Þetta kom fram í jómfrúarræðu þingmannsins á Alþingi í dag þar sem hún fjallaði um lög um velferð dýra sem öðluðust gildi í ársbyrjun 2014. 

„Markmið laganna er m.a. að dýr sem skyni gæddar verur séu laus við hvers lags vanlíðan eða þjáningu. Ákvæðum laganna er einnig ætlað að tryggja að dýr geti lifað í samræmi við sitt eðlilega atferli. Ég set spurningarmerki við þennan skilning á hugtakinu velferð, m.a. í ljósi þeirrar meðferðar sem dýrunum er að endingu veitt. Er velferð mín höfð í hávegum þegar litið er á mig sem framleiðsluvöru, þegar mér er slátrað? Ég sætti mig ekki við það,“ sagði Eydís. 

Þá sagði hún ósamræmis gæta í því hvaða meðferð mannfólk annars vegar og dýr hins vegar eigi skilið. „Dýr eru skyni gæddar verur, hafa tilfinningar og finna fyrir sársauka. Sömuleiðis er okkur ekki nauðsynlegt að hagnýta þau á einn eða annan hátt. Á þessum tveimur forsendum byggi ég í grunninn afstöðu mína. Við eigum ekki tilkall til lífs dýra. Framleiðsla á lífi þeirra einungis til neyslu, yndisauka eða skemmtunar er grundvallarfrelsissvipting sem ég stend alfarið gegn,“ sagði Eydís, sem uppskar „heyr, heyr“ frá nokkrum þingmönnum í lok ræðunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert