Vilja staðfestingu frá Landspítalanum

Ljósmynd/Landspítalinn

Í kjölfar ummæla yfirlæknis meinafræðideildar Landspítala í fjölmiðlum um að Landspítali geti annast greiningu leghálssýna vegna krabbameinsskimunar hefur heilbrigðisráðuneytið óskað eftir því að spítalinn staðfesti vilja sinn þessa efnis. Óskað er eftir því að spítalinn geri grein fyrir því til hvaða aðgerða hann þyrfti að grípa til að annast umrædda starfsemi þannig að hún uppfylli viðmið um gæði, öryggi og skilvirkni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu og greint var frá á mbl.is í gær. Aftur á móti var þar vísað í ummæli Karls G. Kristinssonar í Læknablaðinu en hið rétta er að ráðuneytið vísar í viðtal RÚV við Jón Gunnlaug Jónasson, yfirlækni meinafræðideildar Landspítalans. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. 

„Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins sem tók við ábyrgð á skimunum fyrir leghálskrabbameini um áramót, beindi erindi til Landspítala 22. júlí á liðnu ári, varðandi greiningu sýna úr leghálskrabbameinsskimunum. Landspítali svaraði erindinu með bréfi, 12. ágúst 2020, þar sem sagði m.a. að rannsóknir/greiningar frumusýna í tengslum við skimun fyrir leghálskrabbameini væri allnokkuð frábrugðin starfi á meinafræðideild spítalans, þarfnaðist sérhæfðs starfsfólks og mjög sérhæfðs tækjabúnaðar, auk viðeigandi húsnæðis: „Mjög lítið af þessu er til staðar á meinafræðideildinni og verður að segjast […] að við teljum ekki ástæðu til að óska eftir að sinna þessari rannsóknarstarfsemi.“ 

Tilvitnað bréf og umræður í kjölfar þess leiddu til þess að heilsugæslan leitaði annarra lausna um greiningu á sýnum og gerði samning til þriggja ára við rannsóknarstofu sjúkrahússins í Hvidovre í Danmörku. Sá samningur er uppsegjanlegur með þriggja mánaða fyrirvara.

Óskað er eftir svörum Landspítala við erindinu fyrir 15. mars næstkomandi,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert