Voru á yfir 100 km hraða á 50-götu

Hámarkshraðinn var 50 km/klst.
Hámarkshraðinn var 50 km/klst. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveir ökumenn voru stöðvaðir eftir hraðamælingu lögreglu í hverfi 109, þ.e. Stekkjum, Bökkum og Seljahverfi, eftir miðnætti í nótt.

Báðir voru þeir að keyra á götu þar sem hámarkshraði er 50 km/klst.

Ökutæki annars þeirra mældist á 111 kílómetra hraða. Var ökumanninum tilkynnt að viðurlög við brotinu væru 150 þúsund króna sekt og svipting ökuréttinda í þrjá mánuði.

Ökutæki hins mældist á 103 kílómetra hraða. Sá er 17 ára og verður forráðamönnum og barnavernd tilkynnt um málið, að því er lögregla greinir frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert