Innkalla Budweiser Budvar bjór

Budweiser Budvar Original Lager 0,5L í dós með framleiðslu dagsetninguna …
Budweiser Budvar Original Lager 0,5L í dós með framleiðslu dagsetninguna 17.6.21 og best fyrir 17.6.22 hefur verið innkallaður.

Ákveðið hefur verið að innkalla Budweiser Budvar bjór í hálfs lítra umbúðum með framleiðslu dagsetningu 17.6.21 og best fyrir dagsetningu 17.6.22 í varúðarskyni vegna hugsanlegrar örverumengunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rolf Johansen & Co, innflytjanda Budweiser.

Í tilkynningunni segir að sökum nokkurra ábendinga frá viðskiptavinum um sterka og óþægilega brennisteinslykt bendi allt til þess að lítill hluti framleiðslulotunnar hafi mengast af algengum loftbakteríum við framleiðslu bjórsins. „Bakteríurnar sem um ræðir valda ekki neinum skaða fyrir neytendur en skapa þess í stað verulega vont bragð og megna lykt sem gerir bjórinn ódrekkanlegan, og því á engan hátt í samræmi við skuldbindingu Budweiser Budvar til gæðastaðla við bruggun,“ segir þar jafnframt.

Hægt verður að skila vörunni í næstu Vínbúð og fá þar nýja vöru eða fulla endurgreiðslu. Þá er jafnframt tilgreint að „þeir neytendur sem kunna að hafa upplifað þetta vandamál en ekki tilkynnt það, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Rolf Johansen & Co, umboðs- og dreifingaraðila Budweiser Budvar á Íslandi, í gegnum netfangið atli@rjc.is“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert