Búið að opna Hellisheiði og Þrengsli

Lokað var fyrir umferð um Hellisheiði fyrr í kvöld.
Lokað var fyrir umferð um Hellisheiði fyrr í kvöld. mbl.is/Sigurður Bogi

Búið er að opna vegina um Hellisheiði og Þrengsli að nýju en þar er mjög hált og mjög blint á köflum og á Sandskeiði líka.

Gular veðurviðvaranir eru enn víða í gildi og verða áfram út morgundaginn.

Hringvegurinn er enn lokaður á milli Skóga og Víkur, um Skeiðarársand, Freysnes og Breiðamerkursand.

Hægt er að fylgjast með færð á vegum á vefsíðu Vegagerðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert