50% fjölgun kærumála og aukið álag

Leysa þarf úr fjölda deilumála.
Leysa þarf úr fjölda deilumála. mbl.is/Árni Sæberg

Kærumálum til kærunefndar húsamála hefur fjölgað um 50% á nokkrum árum. Formaður nefndarinnar segir í umsögn til Alþingis um húsaleigufrumvarp innviðaráðherra að nefndin sé í raun löngu sprungin og málahalinn sé orðinn umtalsverður.

Málafjöldinn fór fyrst yfir 100 mál árið 2018 en í fyrra bárust nefndinni 148 kærur og álitsbeiðnir. Kærunefndin leysir m.a. úr ágreiningi leigjenda og leigusala.

Í umsögninni segir að komið hafi mjög á óvart að í frumvarpinu séu gerðar kröfur um styttri málsmeðferðartíma í vissum tegundum mála og enn standi til að auka álag á nefndina án þess að fjárframlög séu aukin verulega. 

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert