Erlent flutningaskip varð vélarvana um fjórar sjómílur út af Rifstanga í nótt.
Laust fyrir klukkan þrjú var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar kallaðar út ásamt áhöfninni á varðskipinu Freyju.
Auk þess var íslenskt togskip sem var í nágrenninu beðið um að halda á staðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.
Áhöfninni um borð í flutningaskipinu tókst að stöðva rek skipsins, sem stefndi í átt að landi, með því að láta akkeri þess falla.
Er skipið nú um þrjár sjómílur frá landi og akkeri þess halda. Vindur er hægur á staðnum og ölduhæð um tveir metrar.
Þegar mesta hættan var liðin hjá voru sjóbjörgunarsveitir afturkallaðar ásamt togskipinu sem var til taks á staðnum.
Áætlað er að varðskipið Freyja verði komið á staðinn eftir hádegi en þá verður tekin ákvörðun með útgerð skipsins með hvaða hætti það verði dregið af staðnum. Þá er þyrlusveit Landhelgisgæslunnar í viðbragðsstöðu á Akureyri ef á þarf að halda.