Skemmtistaðurinn B5 hefur lokað dyrum sínum og mun ekki opna aftur eins og til stóð.
Þetta staðfestir Sverrir Einar Eiríksson, veitingamaður og eigandi staðarins í samtali við mbl.is, en hann kveðst segja skilið við Bankastrætið í góðri sátt við leigusala.
Að sögn Sverris þurfa djammarar Reykjavíkur þó ekki að örvænta enda muni hann halda fjörinu gangandi á skemmtistaðnum Exit, sem hann hefur ákveðið að einbeita sér að.
„Þetta var bara mesta fjör sem ég hef upplifað á B5 en nú er það bara komið yfir á Exit.“
Lögreglan innsiglaði nýverið þrjú fyrirtæki Sverris að beiðni skattayfirvalda: B5, Exit og Nýju vínbúðina. Hafa Nýja vínbúðin og Exit verið opnuð að nýju.
Auk þess var hóteli Sverris, Brim, ítrekað lokað og gestum vísað burt þar sem að hótelið skorti tilskilin rekstrarleyfi frá sýslumanni. Aðspurður segir Sverrir hótelið nú hafa tilskilin leyfi og kveðst horfa jákvæður fram á við.