Óskar skipaður forstjóri Framkvæmdasýslunnar

Óskar Jósefsson hefur verið skipaður forstjóri Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna (FSRE),
Óskar Jósefsson hefur verið skipaður forstjóri Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna (FSRE),

Óskar Jósefsson hefur verið skipaður nýr forstjóri Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna (FSRE), en það er stofnun sem varð til árið 2021 með sameiningu samnefndra ríkisstofnana. Óskar hefur verið settur forstjóri FSRE síðasta árið.

Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að Óskar hafi meðal annars verið framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála á árunum 2016-2021 og tímabundið forstjóri Allrahanda og svo settur forstjóri FSRE frá því í maí 2023. Þá hefur hann gengt stöðu forstjóra Landssíma Íslands hf., og Ístaks hf. auk þess að vera framkvæmdastjóri upplýsinga- og tæknisviðs Kaupþings banka. Óskar stýrði einnig ráðgjafastarfsemi PwC um nokkurra ára skeið auk þess að starfa sjálfstætt sem ráðgjafi.

Óskar er verkfræðingur með M.Sc. gráðu í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá Danmörku. 20 stóttu um stöðuna en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Skipan í embættið hefur tekið gildi.

FSRE hefur umsjón með mótun og rekstri aðstöðu sem nýtist öllum íbúum landsins með einum eða öðrum hætti. Stofnunin annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflum húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka