Stærsti sjónvarpsskjár á Íslandi við Kringluna

Nigel Griffiths virðir fyrir sér skjáinn stóra sem hann var …
Nigel Griffiths virðir fyrir sér skjáinn stóra sem hann var að stilla réttan. mbl.is/Kristinn

Vegfarendur um Miklubraut geta þessa dagana horft á stærsta sjónvarpsskjá sem settur hefur verið upp hér á landi. Skjárinn, sem er um 40 fermetrar á stærð, er þar sem áður var ljósaperuskilti Kringlunnar og snýr að gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Skjárinn verður á Kringlunni til 19. ágúst og þar má meðal annars sjá kynningar um menningarnótt og Reykjavíkurmaraþon auk auglýsinga og skemmtiefnis. Skjárinn er í eigu ensks fyrirtækis sem sérhæfir sig í að setja upp slíka skjái tengda ýmsum viðburðum.

Einnig verður settur upp 10 fermetra sjónvarpsskjár inni í Kringlunni sjálfri sem sýnir sama efni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert