Staðnir að verki við neyslu kannabis

Lögreglumenn við eftirlit í Keflavík komu í nótt að tveimur mönnum í bíl og voru þeir að hefja kannabisneyslu. Segir lögreglan á heimasíðu sinni, að mennirnir hafi verið handteknir og lagt var hald á lítilræði af tóbaksblönduðu hassi.

Á næturvaktinni voru tveir ökumenn handteknir vegna gruns um ölvun við akstur, annar í Njarðvík en hinn í Keflavík. Eftir skýrslu- og blóðsýnatöku voru ökumennirnir frjálsir ferða sinna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert