Ólafur Ragnar afhenti verðlaun í sögusamkeppni á vegum Heimilis og skóla

Verðlaunahafar ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni í Borgarbókasafninu í dag.
Verðlaunahafar ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni í Borgarbókasafninu í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti í dag verðlaun í sögusamkeppni SAFT fyrir grunnskólanemendur, en verðlaunaafhendingin fór fram í Borgarbókasafninu í Tryggvagötu. SAFT er vakningarverkefni á vegum Heimilis og skóla-landssamtaka foreldra, um örugga og jákvæða netnotkun barna og unglinga, að því er segir í tilkynningu.

Þar segir að SAFT sé eina forvarnaverkefnið af þessu tagi sem unnið er á Íslandi. Sögusamkeppni SAFT var hleypt af stað á Alþjóðlega netöryggisdaginn, 8. febrúar síðastliðinn. Þátttakendur voru 9-16 ára grunnskólanemar sem boðið var að fara í ferðalag á Netinu og skrifa um það sögu sem þau sendu inn í rafrænu formi.

Eftirtalin börn hlutu verðlaun í samkeppninni:

Yngri flokkur 9-12 ára:

1. verðlaun: Fríða Theodórsdóttir, 10 ára, Klébergsskóla á Kjalarnesi.
2. verðlaun: Helga Sædís Jónsdóttir 10 ára, Álftanesskóla, Álftanesi.
3. verðlaun: Elín Jósepsdóttir, Borgarhólsskóla á Húsavík.

Eldri flokkur 13-16 ára.

1. verðlaun: Ingibjörg Ólöf Benediktsdóttir, 14 ára, Varmalandsskóla í Borgarfirði.
2. verðlaun: Elín Þórsdóttir, 13 ára, Hólabrekkuskóla í Reykjavík.
3. verðlaun: Stefán Jóhannsson 13 ára, Seyðisfjarðarskóla á Seyðisfirði.

Heiðarskóli í Reykjanesbæ fékk verðlaun fyrir glæsilega þátttöku bekkjarins 4-HS sem sendi inn 11 sögur. Gunnar Þór Jónsson skólastjóri og Heiðrún Björk Sigmarsdóttir kennari tóku við verðlaununum.

Vinningshafi sem boðið verður ásamt forráðamanni á lokahátíð sögusamkeppninnar í París í Frakklandi 9. desember nk. er Ingibjörg Ólöf Benediktsdóttir, 14 ára, Varmalandsskóla, Borgarfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert