Öldruð kona fannst látin í íbúð

Hálfníræð kona fannst látin í íbúð sinni í Reykjavík á aðfangadag. Fram kom í fréttum Útvarpsins er konan, sem fædd var árið 1919, talin hafa legið látin í íbúð sinni í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur í um 3 vikur áður en grennslast var fyrir um hana.

Nágrannar kölluðu lögreglu á vettvang á aðfangadag eftir að ókennileg lykt fór að berast um ganga í fjölbýlishúsinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert