Óveður í aðsigi

Búast má við gríðarlegu hvassviðri á landinu í nótt og …
Búast má við gríðarlegu hvassviðri á landinu í nótt og á morgun. mbl.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út viðvörun vegna storms sem gengur yfir landið í nótt og á morgun. Af því tilefni vill Slysavarnafélagið Landsbjörg brýna fyrir fólki að gera ráðstafanir svo hægt sé að koma í veg fyrir tjón og óþægindi er vilja fylgja slíku veðri.

Gert er ráð fyrir allt að 50 m/s í hviðum á NV-landi í nótt og allt að 25 m/s á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá veðurstofunni má því búast við að vindhraði í hviðum á höfuðborgarsvæðinu nái allt að 40-45 m/s.

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða í viðbragðsstöðu um land allt meðan veðrið gengur yfir. Hafa þær yfir að ráða sérstökum ,,óveðursbúnaði” sem nýtist í slíkum aðstæðum. Þurfi fólk á aðstoð þeirra að halda má hringja í Neyðarlínuna – 112 eftir hjálp.

Í meðfylgjandi ítarefni er að finna góð ráð fyrir almenning varðandi undirbúning fyrir óveður í líkingu við það sem von er á:

Varúðarráðstafanir í óveðri

Reykjavík 04.11.06

Þegar sterkur vindur gengur yfir skapast mesta hættan þegar lausir hlutir fjúka. Því er mikilvægt gæta þess að festa þá vel og tryggilega eða koma þeim fyrir innandyra.

Við flest íbúðarhús er um að ræða hluti í garði og á svölum, svo sem garðhúsgögn, grill, hitara og trampólín. Fari þessir hlutir af stað er hætta á að þeir lendi á rúðum og brjóti þær eða skemmi bifreiðar.

Fullvissið ykkur öllum gluggum og dyrum sé vel lokað. Brotni rúða skal heimilisfólk yfirgefa herbergið, loka dyrum og hringja eftir aðstoð björgunarsveita í síma Neyðarlínunnar -112.

Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og annað. Húsbyggendur ættu að sýna sérstaka varkárni í þeim efnum.

Tryggið að hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og dráttarkerrur séu í skjóli við ríkjandi vindátt og að kyrfilega sé gengið frá þeim.

Dveljið innandyra meðan veðrið geysar og fylgist með verðurfréttum og tilkynningum í fjölmiðlum.

Séu varúðarráðstafanir gerðar aukast líkur á að þessi djúpa haustlægð fari yfir landið án þess að skapa teljandi vandkvæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert