Krefjast afnáms útflutningsskyldu lambakjöts

Yfirvöld krefjast þess að tflutningsskylda verði afnumin.
Yfirvöld krefjast þess að tflutningsskylda verði afnumin. mbl.is

Stjórnvöld krefjast þess að í nýjum samningi milli sauðfjárbænda og stjórnvalda verði svokölluð útflutningsskylda afnumin. Viðræður um samninginn eru langt komnar, en núverandi samningur rennur út í lok þessa árs. Rætt er um að nýr samningur gildi til sex ára og að hann feli í sér svipuð fjárútlát fyrir ríkissjóð og núverandi samningur.

Útflutningsskylda felur í sér að bændur skuldbinda sig til að selja hluta af framleiðslu sinni á erlenda markaði. Á síðasta ári voru flutt út um 700 tonn af lambakjöti. Það er mun minna en árin þar á undan.

Lambakjötið er eina kjöttegundin sem um gilda sérstakar reglur sem þvinga framleiðendur og sláturleyfishafa til að flytja hluta framleiðslunnar á erlenda markaði. Að mati landbúnaðarráðuneytisins eru þessar reglur úreltar og fela í sér truflandi áhrif á verðmyndun. Mikil andstaða er hins vegar meðal bænda við að gera þessa breytingu. Þeir telja að afnám útflutningsskyldu muni raska jafnvægi á kjötmarkaði og sé fallið til þess að rýra kjör bænda.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa stjórnvöld gert forystu bænda grein fyrir því að þau muni ekki gera nýjan sauðfjársamning nema útflutningsskyldan verði felld niður. Spurningin sé aðeins hvort það gerist í upphafi samnings eða síðar á samningstímanum. Samningaviðræður eru núna á viðkvæmu stigi og óljóst hvenær þeim lýkur.

Innlendi markaðurinn gefið hærra verð

Ekki er reiknað með að útflutningur á lambakjöti stöðvist þótt útflutningsskylda verði afnumin. Það yrði hins vegar alfarið mál bænda og afurðastöðvanna hversu mikið yrði flutt út og með hvaða hætti. Innlendi markaðurinn hefur gefið bændum mun hærra verð en erlendir markaðir og því má reikna með að þessi breyting þýði að meira lambakjöt fari á innlendan markað.

Samkvæmt fjárlögum þessa árs renna 3,2 milljarðar til sauðfjárframleiðslunnar, þar af fara um 1,7 milljarðar í beingreiðslur til bænda.

Í hnotskurn
» Stjórnvöld vilja að útflutningsskylda á lambakjöti verði afnumin.
» Útflutningsskyldan felur í sér að bændur skuldbinda sig til að selja hluta af framleiðslu sinni á erlenda markaði.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert