Níu handteknir í aðgerðum lögreglu á Suðurnesjum

Níu manns voru handteknir í aðgerðum lögreglu á Suðurnesjum gegn fíkniefnabrotum á miðvikudagskvöldið, að því er fram kemur á Lögregluvefnum.

Lögreglan fór þá ásamt sérsveit og fíkniefnadeild tollstjórans í skipalagðar aðgerðir að þremur stöðum og voru gerðar húsleitir í Reykjanesbæ og í Vogum.

Á öllum stöðunum fundust meint fíkniefni og/eða steralyf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert