Eineygður steinn

Sigurður Höskuldsson með steininn góða.
Sigurður Höskuldsson með steininn góða. mbl.is/Alfons

Sigurður Höskuldsson, skipverji á netabátnum Ólafi Bjarnasyni SH-137 frá Ólafsvík, heldur hér á eineygðum steini, sem þvældist í net bátsins í gær. Sigurður sagðist ætla að setja steininn í garðinn hjá sér. "Þar ætla ég að láta steininn hafa auga með öllum óboðnum gestum," sagði Sigurður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert