Heildarfjöldi utankjörfundaratkvæða sem greidd hafa verið á kjörstöðum eða borist aðsend til kjörstjórnar er í heildina 32.410 talsins á landinu öllu. Þetta staðfestir Bergþóra Sigmundsdóttir, sviðstjóri þinglýsinga og leyfasviðs hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu voru samtals 19.201 búnir að kjósa á kjörstað, þar af 3.759 í dag. Til viðbótar höfðu borist 2.913 aðsend atkvæði. Samtals fjöldi atkvæða í höfuðborginni voru því 22.115.
Bergþóra segir að í alþingiskosningunum 2013 hafi 16.257 verið búnir að kjósa hjá Sýslumanninum í Reykjavík samanborið við 19.201 núna hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
Á móti komi að embættin á höfuðborgarsvæðinu hafa verið sameinuð síðan þá og segir hún að líklega sé fjöldinn örlítið minni í ár en fyrir rúmlega þremur árum. Í forsetakjörinu í sumar var tala þeirra sem höfðu kosið hjá sýslumanninum utankjörfundar samtals 15.829.