Formenn funduðu fram á kvöld

Formenn VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks funda í Ráðherrabústanum um myndun …
Formenn VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks funda í Ráðherrabústanum um myndun ríkisstjórnar. mbl.is/​Hari

Stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks, Vinstri-grænna og Framsóknarflokks héldu áfram í gær og miðar vel samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.

Formennirnir Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson hittust á fundi í ráðherrabústaðnum í gærmorgun og stóð fundurinn fram á kvöld.

Þar unnu þau áfram að stjórnarsáttmálanum en mikill tími hefur farið í þau skrif, frágang og styttingar svo sáttmálinn verði eins skýr og mögulegt er. Formennirnir halda áfram fundum sínum í dag og funda einnig með hagsmunaaðilum. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert