Hilda Jana leiðir lista Samfylkingar

Framboðslistinn var samþykktur í kvöld.
Framboðslistinn var samþykktur í kvöld. Ljósmynd/Aðsend

Hilda Jana Gísladóttir fjölmiðlakona leiðir framboðslista Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem var samþykktur einróma á aðalfundi félagsins í kvöld.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Dagbjört Pálsdóttir bæjarfulltrúi er í öðru sæti og Heimir Haraldsson, náms- og starfsráðgjafi, er í þriðja sæti.

„Félagsmenn lýstu yfir ánægju með listann og eru spenntir fyrir komandi kosningum. Listinn er fjölbreyttur og ný andlit í bland við mikla reynslu,“ segir í tilkynningunni.

Hluti af frambjóðendunum.
Hluti af frambjóðendunum. Ljósmynd/Aðsend

Listinn er þannig skipaður:

1. Hilda Jana Gísladóttir

2. Dagbjört Pálsdóttir

3. Heimir Haraldsson

4. Unnar Jónsson

5. Ólína Freysteinsdóttir

6. Orri Kristjánsson

7. Friðbjörg J. Sigurjónsdóttir

8. Ragnar Sverrisson

9. Margrét Benediktsdóttir

10. Þorlákur Axel Jónsson

11. Sigríður Huld Jónsdóttir

12. Þorsteinn Kruger

13. Sif Sigurðardóttir

14. Árni Óðinsson

15. Valgerður S. Bjarnadóttir

16. Haraldur Þór Egilsson

17. Valdís Anna Jónsdóttir

18. Þorgeir Jónsson

19. Ásdís Karlsdóttir

20. Eiríkur Jónsson

21. Hreinn Pálsson

22. Sigríður Stefánsdóttir

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert