Oddvitar allra framboðanna á Akureyri kusu fyrir hádegi. Heldur rólegt var í morgun á kjörstað, í húsnæði Verkmenntaskólans. Hvergi hafa enn myndast raðir og allt gekk því greiðlega.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson, oddviti Framsóknarflokksins, mætti fyrstur á kjörstað klukkan 10 og Halla Björk Reynisdóttir, oddviti Lista fólksins, rétt á eftir. Þau kusu í sömu kjördeild og Halla var næst þangað inn á eftir Guðmundi.
Hilda Jana Gísladóttir, oddviti Samfylkingarinnar, gekk í hús á meðan Guðmundur og Halla Björk voru enn á staðnum og Hlynur Jóhannsson, oddviti Miðflokksins kom strax á eftir henni. Þau Hilda kusu í sömu kjördeild.
Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, kom næstur í hús og fljótlega eftir að hann hafði skilað atkvæði sínu kaus Halldór Arason, oddviti Pírata.
Sóley Björk Stefánsson, oddviti VG, kaus síðust – mætti á staðinn laust fyrir klukkan 12.