Nýtt Alþingi Íslendinga
Bloggað um fréttina
-
Magnús Vignir ÁrnasonEvrópugrýlan grettir sig
-
Gunnar Th. GunnarssonMálefnalegt aðhald
-
Kristbjörg ÞórisdóttirVor í lofti hjá Framsókn
-
Hlynur Jón MichelsenNiðurlægjandi úrslit alþingiskosninganna fyrir
-
Sólveig Þóra JónsdóttirMinn flokkur fékk þó 27.3% ekki slæmt
-
BreiðavíkursamtökinBreiðavíkursamtökin með þingmann!
-
Egill Rúnar SigurðssonSöguleg úrslit! Framsókn með í ríkisstjórn?!
-
Þorkell SigurjónssonHUGRENNING AÐ LOKNUM ALÞINGISKOSNINGUM.
-
Reynir JóhannessonSjálfstæðismenn munu veita nýrri ríkisstjórn
-
Sigríður SigurðardóttirLOKSINS!
-
BratturSjálfstæðisflokkurinn sigurvegari kosninganna!
-
Guðmundur Ragnar BjörnssonEngin umsókn um ESB = svik við kjósendur
-
Lilja SkaftadóttirNýtt Alþingi
-
Þóra GuðmundsdóttirTil hamingju Ísland
-
Rakel SigurgeirsdóttirVonin er óneitanlega áhyggjum blandin
-
Ágúst Már GarðarssonEnginn sigurvegari?
-
Marinó G. NjálssonÞjóðin hefur talað - verkefnin framundan eru stór
-
Njörður HelgasonÁbyrgðina verður að axla.
-
Agnar BragiX-S og X-D græða á kosningakerfinu !
-
Heiða B. HeiðarsÞjóðin er ekki alveg úti á túni..... fólk var að
-
Ægir Óskar HallgrímssonVonbrigði Samfylkingar!
-
LindaTil Hamingju Íslendingar, vonin er komin á ný með
-
Doddi - Þorsteinn G. JónssonVG er tölfræðilega sigurvegari kosninganna!
-
Guðni Karl HarðarsonÁskorun til Jóhönnu og Samfylkingu
-
Loftur Altice ÞorsteinssonFullveldissinnar höfðu sigur - Samfylkingunni
-
Jón Baldur LorangeVinstri grænir sigurvegarar kosninganna. Þeir geta
-
Þórhallur HeimissonTil hamingju VG.
-
Sædís Ósk HarðardóttirKosningasigur Vinstri grænna
-
Jón Aðalsteinn JónssonSigurvegarar kosninganna
-
Friðrik Hansen GuðmundssonKrafa um siðbót og endurnýjun
-
Sigrún JónsdóttirAukið vægi kvenna er ánægjulegt :)
-
Arnar Bergur GuðjónssonFrjálslyndir áttu þetta fylgi ekki skilið
-
Jenný Anna BaldursdóttirBúin á því
-
Egill JóhannssonSigur Borgarahreyfingar og VG. Hraðferðar-ESB
-
FrelsissonSáttur því ég bjóst við enn verri útkomu...
-
Haukur NikulássonBaráttan gegn ESB-landráðunum hófst fyrir alvöru í
-
Haraldur HaraldssonNýtt Alþingi Íslendinga/mikið endurnyjað/Kannski
-
Bergur ThorbergAndlátsfregn- Tekin úr öndunarvél í nótt með
Tuttugu og sjö nýir þingmenn setjast á Alþingi eftir alþingiskosningarnar í gær. Þetta varð ljóst þegar síðustu tölur bárust loks úr NA-kjördæmi á níunda tímanum í morgun. Af 63 þingmönnum eru 26 konur eða 43%. Átta þingmenn, sem sóttust eftir endurkjöri og voru ofarlega á framboðslistum, náðu ekki endurkjöri.
Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkurinn eftir kosningarnar, fékk 29,8% atkvæða og 20 þingmenn, bætti við sig 2.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 23,7% atkvæða og 16 þingmenn, tapaði 9 og hefur fylgi flokksins aldrei verið jafn lítið.
Vinstri hreyfingin grænt framboð fékk 21,7% atkvæða og 14 þingmenn, bætti við sig fimm.
Framsóknarflokkurinn fékk 14,8% atkvæða og 9 þingmenn, bætti við sig 3.
Þá varð til nýr þingflokkur, Borgarahreyfingin, sem fékk 7,2% atkvæða og 4 þingmenn.
Frjálslyndi flokkurinn fékk 2,2% og engan mann en fékk 4 þingmenn kjörna árið 2007.
Þá fékk Lýðræðishreyfingin 0,6% atkvæða.
Margir skiluðu auðu: 6.226 eða 3,2% allra sem komu á kjörstað.
Þingmenn Reykjavíkurkjördæmis norður:
Kjördæmakjörnir
- Jóhanna Sigurðardóttir (S)
- Katrín Jakobsdóttir (V)
- Illugi Gunnarsson (D)
- Helgi Hjörvar (S)
- Árni Þór Sigurðsson (V)
- Valgerður Bjarnadóttir (S)
- Pétur H. Blöndal (D)
- Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (B)
- Þráinn Bertelsson (O)
Uppbótarþingmenn
- Álfheiður Ingadóttir (V)
- Steinunn Valdís Óskarsdóttir (S)
Þingmenn Reykjavíkurkjördæmis suður:
Kjördæmakjörnir
- Össur Skarphéðinsson (S)
- Guðlaugur Þór Þórðarson (D)
- Svandís Svavarsdóttir (V)
- Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (S)
- Ólöf Nordal (D)
- Lilja Mósesdóttir (V)
- Skúli Helgason (S)
- Vigdís Hauksdóttir (B)
- Birgitta Jónsdóttir (O)
Uppbótarþingmenn
- Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir (S)
- Birgir Ármannsson (D)
Þingmenn Suðvesturkjördæmis:
Kjördæmakjörnir
- Árni Páll Árnason (S)
- Bjarni Benediktsson (D)
- Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (V)
- Katrín Júlíusdóttir (S)
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (D)
- Siv Friðleifsdóttir (B)
- Þórunn Sveinbjarnardóttir (S)
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir (D)
- Þór Saari (O)
- Ögmundur Jónasson (V)
Uppbótarþingmenn
- Magnús Orri Schram (S)
- Jón Gunnarsson (D)
Þingmenn Norðvesturkjördæmis:
Kjördæmakjörnir
- Ásbjörn Óttarsson (D)
- Jón Bjarnason (V)
- Guðbjartur Hannesson (S)
- Gunnar Bragi Sveinsson (B)
- Einar K. Guðfinnsson (D)
- Lilja Rafney Magnúsdóttir (V)
- Ólína Þorvarðardóttir (S)
- Guðmundur Steingrímsson (B)
Uppbótarþingmaður
- Ásmundur Einar Daðason (V)
Þingmenn Norðausturkjördæmis:
Kjördæmakjörnir
- Steingrímur J. Sigfússon (V)
- Birkir Jón Jónsson (B)
- Kristján L. Möller (S)
- Kristján Þór Júlíusson (D)
- Þuríður Backman (V)
- Höskuldur Þór Þórhallsson (B)
- Sigmundur Ernir Rúnarsson (S)
- Björn Valur Gíslason (V)
- Tryggvi Þór Herbertsson (D)
Uppbótarþingmaður
- Jónína Rós Guðmundsdóttir (S)
Þingmenn Suðurkjördæmis:
Kjördæmakjörnir
- Björgvin G. Sigurðsson (S)
- Ragnheiður Elín Árnadóttir (D)
- Sigurður Ingi Jóhannsson (B)
- Atli Gíslason (V)
- Oddný G. Harðardóttir (S)
- Árni Johnsen (D)
- Eygló Þóra Harðardóttir (B)
- Róbert Marshall (S)
- Unnur Brá Konráðsdóttir (D)
Uppbótarþingmaður
- Margrét Tryggvadóttir (O)
Útstrikanir meiri en áður hafa sést
Fram hefur komið að mikið var um útstrikanir víða, einkum þó hjá Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu í Reykjavík og í Suðurkjördæmi. Ekki er ljóst hvort þessar útstrikanir hafa áhrif á röð frambjóðenda á listum.
Engin nöfn hafa verið nefnd formlega en röð þingmanna í einstökum kjördæmum gæti breyst. Að sögn Ástráðs Haraldssonar, formanns landskjörstjórnar er ekki víst að fyerir liggi fyrr en á morgun eða þriðjudag, hvort og þá hvaða áhrif útstrikanir hafa.
Inni og úti í nótt
Talsverðar sviptingar urðu á því í nótt og morgun hverjir væru líklegir þingmenn. Þær síðustu urðu þegar lokatölurnar voru birtar í Norðausturkjördæmi í morgun en þá var ljóst að Sjálfstæðisflokkur hafði unnið mann af Framsóknarflokki.
Við það varð til hringekja, sem leiddi til þess að Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, missti þingsæti í Suðvesturkjördæmi, sem hann hafði haft síðari hluta nætur, í hendur Jóns Gunnarssonar. Þá féll einnig Huld Aðalbjarnardóttir, Framsóknarflokki, af lista yfir þingmenn Norðausturkjördæmis en í stað hennar kom Jónína Rós Guðmundsdóttir, Samfylkingu.
Nýir þingmenn
Vinstrihreyfingin-grænt framboð:
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Suðvesturkjördæmi, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Norðvesturkjördæmi, Björn Valur Gíslason, Norðausturkjördæmi, Svandís Svavarsdóttir, Reykjavík suður, Lilja Mósesdóttir, Reykjavík suður, Ásmundur Einar Daðason, Norðvesturkjördæmi.
Sjálfstæðisflokkur:
Ásbjörn Óttarsson, Norðvesturkjördæmi, Unnur Brá Konráðsdóttir, Suðurkjördæmi, Tryggvi Þór Herbertsson, Norðausturkjördæmi.
Framsóknarflokkur:
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Reykjavík norður, Gunnar Bragi Sveinsson, Norðvesturkjördæmi, Guðmundur Steingrímsson, Norðvesturkjördæmi, Sigurður Ingi Jóhannsson, Suðurkjördæmi, Vigdís Hauksdóttir,Reykjavík suður.
Borgarahreyfingin:
Þráinn Bertelsson, Reykjavík norður, Þór Saari, Suðvesturkjördæmi, Birgitta Jónsdóttir, Reykjavík suður, Margrét Tryggvadóttir, Suðurkjördæmi.
Samfylkingin:
Valgerður Bjarnadóttir,Reykjavík norður, Ólína Þorvarðardóttir, Norðvesturkjördæmi, Oddný G. Harðardóttir, Suðurkjördæmi, Róbert Marshall, Suðurkjördæmi, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Norðausturkjördæmi, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Norðausturkjördæmi, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Reykjavík suður, Skúli Helgason, Reykjavík suður, Magnús Orri Schram, Suðvesturkjördæmi.
Fallnir þingmenn
Þeir þingmenn, sem sóttust eftir endurkjöri en náðu ekki, eru Arnbjörg Sveinsdóttir, Ásta Möller, Sigurður Kári Kristjánsson og Kjartan Ólafsson,sem sátu á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður VG, og Guðjón A. Kristjánsson, Grétar Mar Jónsson og Karl Matthíasson, þingmenn Frjálslynda flokksins.
Til baka








Senda inn efni

