Flaggað í hálfa stöng vegna hryðjuverkanna á Spáni

Spænska fánanum hefur víða verið flaggað í hálfa stöng í …
Spænska fánanum hefur víða verið flaggað í hálfa stöng í gær og dag. AP

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að flaggað skuli í hálfa stöng við opinberar byggingar í dag í ljósi hörmunganna sem hryðjuverkin í Madrid hafa valdið. Þá hefur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands ákveðið að aflýsa árlegri veislu, sem átti að vera á Bessastöðum í kvöld til heiðurs ríkisstjórn, erlendum sendiherrum og æðstu embættismönnum íslenska ríkisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert