Flugvél með óvenjulegt útlit

Flugvélin á Akureyrarflugvelli í dag.
Flugvélin á Akureyrarflugvelli í dag. mbl.is/Jónas Þór Guðmundsson.

Þessi flugvél kom til Akureyrar í dag og vakti athygli fyrir óvenjulegt útlit. Hreyflarnir á henni snúa öfugt við það sem maður á að venjast á skrúfuþotum. Hún er af gerðinni Piaggio P-180 og var að koma frá Bergen í Noregi á leið sinni til Bandaríkjanna, en þar bíður hennar nýr eigandi. Vélin er mjög hraðfleyg og getur náð allt að 370 hnúta hraða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert