Hendrickx líklega brotinn

Jonathan Hendrickx (26) horfir á Steven Lennon skalla boltann framhjá …
Jonathan Hendrickx (26) horfir á Steven Lennon skalla boltann framhjá marki KR í leiknum í kvöld. mbl.is/Golli

Jonathan Hendricks, hægri bakvörður FH-inga, er líklega ökklabrotinn eftir að hann lenti illa í návígi í leik þeirra gegn KR í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í Vesturbænum í kvöld.

Þetta hefur ekki verið endanlega staðfest en Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sagði m.a. í viðtali við Fótbolta.net fyrir stundu að 99 prósent líkur væru á að um brot væri að ræða.

Þá er ljóst að Hendrickx leikur ekki meira með FH-ingum fyrr en seinnipart sumars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert